Á vetrarleikum Fáks í gær kom fram hestur sem er ástæða til að fylgjast með. Vinur frá Reykjavík heitir hann og er undan Kolfinni frá Kjarnholtum og Þrumu frá Viðborðsseli. Hann er því sammæðra Perlu okkar og er úr ræktun Sigurvins eins og hún. Hann var sýndur í kynbótadómi í fyrrasumar og fékk 7,99 í aðaleinkunn (bygging 7,80 / hæfileikar 8,12). Hann er bara nokkuð líkur Perlu, hefur sama fasið en bara enn meiri fótaburð. Vinur endaði í öðru sæti á mótinu í gær, knapi er Jón Gíslason.
0 Comments
Leave a Reply. |