Rimma frá Kópavogi IS1989225302 F. Piltur frá Sperðli (8,33) ff. Stígur frá Kjartansstöðum (8,15) fm. Perla frá Kaðalsstöðum 1 (8,30) M. Nös frá Hala mf. Fengur frá Indriðastöðum mm. Irpa frá Hala
Rimma ber heiðurstitilinn stofnhryssa í hrossaræktinni í Kvíarholti. Stór hluti af tryppunum okkar eru annaðhvort undan henni eða dætrum hennar. Rimma er fædd Hreiðari Sigurbjarnarsyni árið 1989. Arnar eignaðist hana þegar hún var 5 vetra og tóku þau þátt á hinum ýmsu mótum næstu árin. Sjö vetra fékk hún sinn hæsta kynbótadóm, það var á fjórðungsmótinu á Hellu árið 1996. Þetta var árið sem einkunnir í kynbótadómi voru gefnar upp á kommu. Hún fékk 9,5 fyrir skeið og 8 eða hærra fyrir aðra þætti, alls 8,37 í hæfileikaeinkunn.
Rimma er kannski engin fegurðardís, hún ber útlit föður síns, Pilts frá Sperðli, en líklega hefur hún fengið nokkuð af hæfileikum hans líka. Hún er með fjórða hæsta hæfileikadóm afkvæma Pilts en efst er jafnaldra hennar Eydís frá Meðalfelli, móðuramma Spuna frá Vesturkoti. Afkvæmum Rimmu svipar nokkuð til hennar, þau bera mörg hver Piltshausinn, en flest eru þau ágætlega prúð á fax og tagl öfugt við Rimmu.
Rimma hefur alla tíð verið svolítið sérlunduð, hún heldur sig til dæmis oft frá öðrum hestum í stóðinu. Við höfum stundum þurft að hafa mikið fyrir því að koma í hana fyli, hún lætur nú ekki hvern sem er fylja sig. Hún hefur komið tóm frá snillingum eins og Gára, Óð frá Brún (tvisvar), Hrynjanda frá Hrepphólum, Vilmundi, Stála, Aroni (tvisvar) og nú síðast sumarið 2011 tókst ekki að sæða hana við Spuna frá Vesturkoti. Afkvæmin eru nú samt orðin níu. Öfugt við aðrar hryssur þá virðist hún frekar fyljast þegar hún er ekki með folaldi. Kannski veit hún sem er að hún ætti erfitt með að fæða folald og vera fylfull um leið, hún hefur alltaf verið fremur þunn á síðurnar og ekki nokkur leið að fita hana að ráði. En hún er enn í góðu standi og ef hún fær bara nóg að éta þá heldur hún sér vel.
Afkvæmi IS1998225302 Röst frá Reykjavík (7,85) – f. Hrannar frá Kýrholti IS2000225218 Rakel frá Reykjavík – f. Sólon frá Hóli (felld) IS2002225303 Rúna frá Reykjavík (8,05) – f. Geisli frá Sælukoti IS2003287846 Nn frá Kálfhóli 2 – f. Þór frá Kálfhóli 2 (dautt) IS2004125304 Hlynur frá Reykjavík – f. Sveinn-Hervar frá Þúfu IS2006125220 Hvinur frá Reykjavík – f. Hrymur frá Hofi IS2008181742 Hrannar frá Kvíarholti – f. Þeyr frá Akranesi IS2010281742 Rögg frá Kvíarholti – f. Keilir frá Miðsitju IS2012281743 Rispa frá Kvíarholti - f. Blysfari frá Fremra-Hálsi IS2014181xxx Hestfolald frá Kvíarholti - f. Geisli frá Sælukoti (fellt - fæddist vanskapað)
Dómur á fjórðungsmóti á Gaddstaðaflötum 1996 Sýnandi: Arnar Bjarnason
Aðaleinkunn: 7,99 Sköpulag: 7,61 Kostir: 8,37
Höfuð: 7,8 Háls/herðar/bógar: 7,8 Bak og lend: 7,2 Samræmi: 7,8 Fótagerð: 7,3 Réttleiki: 8,0 Hófar: 7,5