Perla frá Reykjavík IS2002225298 F. Smári frá Skagaströnd (8,34) ff. Safír frá Viðvík (8,35) fm. Snegla frá Skagaströnd (7,52) M. Þruma frá Viðborðsseli 1 (8,0) mf. Orri frá Þúfu (8,34) mm. Elding frá Fornustekkum (7,63)
Perla frá Reykjavík er undan Orradóttur og er eina Orraættaða hryssan í ræktuninni hjá okkur.
Perla er ræktuð af Páli Sigurvini Guðmundssyni en Arnar tók hana í tamningu þegar hún var á fjórða vetur og kom fljótlega í ljós að þarna var á ferðinni hross með meiri fótaburð en gerist og gengur. Fótaburður er eiginleiki sem Arnari Bjarnasyni leiðist ekki og tryggði hann sér strax helminginn í hryssunni. Sigurvin lést árið 2013 og þá keyptum við hans helming.
Til að byrja með var henni riðið sem klárhryssu og það tók hana tíma að styrkjast og ná valdi á þessum miklu hreyfingum. Þegar hún var á sjöunda vetur var fyrst farið var að athuga með vekurðina. Þegar til kom þá reyndist hún búa yfir ágætisskeiði með flottu sniði og miklum fótahreyfingum. Við þessa uppgötvun fóru nú að vænkast möguleikarnir á að koma henni í sómasamlegar tölur í kynbótadómi.
Sigurður V. Matthíasson var fenginn til að sýna hana á heimavelli í Víðidalnum í maí 2009. Hann setti hana þétt á taumana og fótaburðurinn fékk að njóta sín svo um munaði. Aftur á móti fékk hún bara 6 fyrir skeið og útkoman varð því ekki eins og vænst var. Þjálfarinn vissi að hún ætti að geta betur og ákvað Arnar að fara sjálfur með hana á sýningu á Hellu í júní. Sú sýning gekk mun betur og útkoman var slétt 8,0 fyrir hæfileika, 7,96 fyrir byggingu, 7,98 alls. Það munaði ekki miklu að hún næði fyrstu verðlaunum!
Perla er algjör drottning, fríð og falleg, mikið húsprýði sem og hagaprýði. Hún stjórnar öllu í stóðinu og skyldi þetta trippadót í kringum hana bara passa sig að vera ekki fyrir henni. Stundum sveiflar hún hausnum í kringum sig eins og risaeðla og sópar þannig öllum frá sér. Hún gefur líka frá sér skemmtileg hljóð, oft kumraði vinalega í henni þegar maður kom inn í hesthúsið en í stóðinu rymur meira í henni, það er augljóst hvað rumið þýðir: farið frá, hér kem ég!
Tölt: 8,0 (Há fótlyfta) Brokk: 7,5 (Há fótlyfta, Ferðlítið) Skeið: 8,0 (Mikil fótahreyfing, Styttingur) Stökk: 8,0 (Hátt) Vilji og geðslag: 8,0 (Vakandi) Fegurð í reið: 8,5 (Mikill fótaburður) Fet: 7,0 Hægt tölt: 8,0 Hægt stökk: 8,0
Afkvæmi IS2011181740 Mökkur frá Kvíarholti - f. Hófur frá Varmalæk IS2012281740 Nett frá Kvíarholti - f. Konsert frá Korpu IS2013225219 Hryssa frá Reykjavík - f. Hrannar frá Flugumýri IS2014281740 Komma frá Kvíarholti - f. Skýr frá Skálakoti IS2015181740 Kveikur frá Kvíarholti - f. Gróði frá Naustum IS2016281740 Sigurrós frá Kvíarholti - f. Jarl frá Árbæjarhjáleigu IS2017181740 Kolfinnur frá Kvíarholti - f. Organisti frá Horni