Rögg frá Kvíarholti IS2010281742 f. Keilir frá Miðsitju (8,63) ff. Ófeigur frá Flugumýri (8,19) fm. Krafla frá Sauðárkróki (8,26) m. Rimma frá Kópavogi (7,99) mf. Piltur frá Sperðli (8,33) mm. Nös frá Hala Kynbótamat 109
Auðna frá Kvíarholti
Auðna frá Kvíarholti IS2010281740 f. Ómur frá Kvistum (8,61) ff. Víglundur frá Vestra - Fíflholti (8,06) fm. Orka frá Hvammi (8,15) m. Fiðla frá Reykjavík (7,93) mf. Hrafn frá Holtsmúla (8,56) mm. Dóttla frá Stóra-Hofi (7,85)
Kynbótamat 114
Auðna er gullmoli. Á bak við hana eru allir gömlu höfðingjarnir, Sörli og Náttfari, Hrafn, Gáski, Ófeigarnir frá Hvanneyri og Flugumýri, Hervar og Otur og gamla Stóra-Hofskynið svo fátt eitt sé nefnt. Myndirnar af henni hér fyrir neðan eru flestar teknar fyrsta daginn í lífi hennar. Þá hélt hún stórkostlega sýningu fyrir okkur, hún fór um á öllum gangi jafnt og annar eins limaburður hefur aldrei sést í Kvíarholti. Hún er stórt trippi, lofthæðin í góðu lagi, fríð og geðsleg á allan hátt, yfirveguð og skynsöm að sjá.