Rúna frá Reykjavík IS2002225305 F. Geisli frá Sælukoti (8,28) ff. Gustur frá Grund (8,28) fm. Dafna frá Hólkoti (7,92) M. Rimma frá Kópavogi (7,99) mf. Piltur frá Sperðli (8,33) mm. Nös frá Hala
Rúna er litla djásnið okkar. Hún er eina 1. verðlauna hryssan sem við eigum.
Rúna sýndi mikla takta sem folald en var fremur óásjáleg þegar hún var tekin á hús á fjórða vetur til frumtamningar. Hún þroskaðist gífurlega þann vetur og var fljótlega orðin mjög efnileg. Hún fór af stað í bindingi en hreinsaði sig svo þegar leið á veturinn. Skeiðið var alltaf tilbúið frá náttúrunnar hendi, það þurfti ekkert að kenna henni það.
Vorið sem hún varð sex vetra ákvað Arnar að renna henni í gegnum kynbótabrautina. Sýningin tókst ekki sem skyldi. Það var eins og hún missti kjarkinn við að sjá þessa löngu kynbótabraut í Hafnarfirði, nú fyrir utan slagveðrið og hvað brautin var þung og blaut, hver er í stuði í skítaveðri? Um miðjan júlí fékk hún að skokka með í vikulangri ferð um hálendið og var í feiknafínu formi eftir það. Ákveðið var að stefna með hana á síðsumarssýninguna á Hellu í ágúst. Í þetta sinn var það Sigurður Sigurðarson sem sýndi hana og nú gekk allt upp og útkoman var 8,26 fyrir hæfileika, 8,05 í aðaleinkunn og fjórða sætið í flokki sex vetra hryssna á sýningunni. Fyrsta 1. verðlauna hrossið úr ræktuninni í höfn.
Rúna er ákaflega kurteis og ljúf hryssa og aldrei neitt frekjunudd í henni gagnvart manni. Í stóðinu lætur hún meira til sín taka og maður er stundum skíthræddur um að hún slasi sig í slagsmálunum.
Rúna er svolítið sérstök að því leyti að hún ber gen sem ekki er hægt að segja að sé algengt eða ríkjandi í hrossastofninum. Hún er undan Geisla frá Sælukoti og því er Gustur frá Grund föðurafi hennar og Piltur frá Sperðli er móðurafi hennar. Í henni finnst enginn Hrafn, enginn Ófeigur frá Flugumýri og enginn Orri.
Síðsumarssýning á Gaddstaðaflötum 2008 Sýnandi: Sigurður Sigurðarson
Aðaleinkunn: 8,05 Sköpulag: 7,72 Kostir: 8,26
Höfuð: 8,0 (Skarpt/þurrt, Vel opin augu) Háls/herðar/bógar: 8,0 (Hátt settur, Stuttur) Bak og lend: 8,5 (Mjúkt bak, Breitt bak) Samræmi: 7,5 (Brjóstdjúpt) Fótagerð: 7,0 ( Mikil sinaskil, Grannir liðir, Grannar sinar) Réttleiki: 7,5 (Afturfætur: Útskeifir) Hófar: 8,0 (Þröngir) Prúðleiki: 7,0
Tölt: 8,5 (Há fótlyfta) Brokk: 7,5 Skeið: 8,5 (Ferðmikið, Öruggt) Stökk: 7,5 Vilji og geðslag: 8,5 (Ásækni, Þjálni) Fegurð í reið: 8,5 (Mikill fótaburður) Fet: 7,0 (Skrefmikið, Flýtir sér) Hægt tölt: 8,0 Hægt stökk: 7,0
Afkvæmi IS2009181742 Feykir frá Kvíarholti – f. Ómur frá Kvistum IS2011281742 Hviða frá Kvíarholti – f. Fróði frá Staðartungu IS2012281742 Spes frá Kvíarholti - f. Spuni frá Vesturkoti IS2013181742 Gustur frá Kvíarholti - f. Hrannar frá Flugumýri IS2014181742 Stjarni frá Kvíarholti - f. Óskasteinn frá Íbishóli (fórst) IS2015281741 Rimma frá Kvíarholti - f. Arion frá Eystra-Fróðholti IS201718174x Bassi frá Kvíarholti - f. Krókus frá Dalbæ