Krafla og Urður stinga saman nefjum Það er afskaplega gott að vera í Víðidalnum á haustin. Þá er enginn á ferli nema örfáir tamningastrumpar eins og við og það er góður vinnufriður. Við tókum tamningarispu í haust og varð okkur mikið úr verki. Veðrið í september var líka svakalega gott og dagarnir langir. Okkur finnst miklu meira ávinnast með því að taka góða törn í september og fram í október heldur en að vera að sperrast við að taka inn snemma í desember í myrkri og slagveðri eins og oft er á þeim tíma. Fjórar hryssur voru frumtamdar, þrjár gerðar reiðfærar og ein var komin vel á veg í gerðinu ... (Read more til að lesa meira) Krafla, fjögurra ára undan Krumma frá Blesastöðum, kom rosalega vel út, hef sjaldan tamið auðveldara hross, það þarf ekkert að sýna henni hlutina oftar en einu sinni. Rúllandi töltari.
Snerpa er þriggja ára undan Smára frá Skagaströnd. Hún sá ekki nokkurn tilgang með gerðisvinnunni svo það var ekki annað að gera en að drífa sig í reiðtúr. Hún er dugleg áfram og veður á öllum gangi. Urður frá Hafnarfirði er þriggja ára undan Sólon frá Skáney og Mist frá Laugarvatni, Angadóttur. Svakalega þroskuð og myndarleg hryssa, rauðblesótt, glófext. Fer af stað á tölti en dettur vonandi í brokkið fljótlega. Hún kippir sér ekki upp við neitt, göslast óhikað í pollana, lítur hvorki til hægri né vinstri og hugsar bara áfram. Markmiðið með hausttamningunni er nákvæmlega það, að fá framhugsun í trippið og að það kunni sæmilega á beilsið. Þessar þrjár náðu því með stæl. Sú fjórða, Fljóð Kjarnadóttir, er allt öðruvísi týpa. Hún er viðkvæm og þarf eitthvað lengri tíma til að átta sig á hlutunum. Hún mun fá rólegri tamningu en hinar. Við slepptum þeim öllum í gær og þær voru frelsinu fegnar. Nú fá þær frí fram yfir áramót, kannski lengur. Jæja, hvar setti ég hlaupaskóna og hvar er nú bókin sem ég var að lesa, er eitthvað í sjónvarpinu?
1 Comment
kristfin
18/10/2011 08:22:20 am
flottar myndir alltaf
Reply
Leave a Reply. |