Í sumar héldum við þremur hryssum, Rúnu, Röst og Fiðlu. Meðeigandi Perlu hélt henni þetta árið og Rimma gamla fékk frí frá folaldseignum.
Rúna fór undir efsta hest í 6 vetra flokki á landsmótinu, Hrannar frá Flugumýri. Í vor fékk Hrannar 9,16 fyrir hæfileika í kynbótadómi, þar af 9,5 fyrir tölt, brokk og vilja, og 9,0 fyrir skeið og fegurð í reið. Það gerist ekki betra. Röst fór undir efsta hest í 7 vetra flokki á landsmótinu, Konsert frá Korpu. Við fengum undan honum fallegt folald í sumar og fannst alveg óhætt að nota hann aftur. Konsert virðist vera nokkuð skotheldur hestur, hann hefur komið mikið fram, er alltaf góður og vart er veikan hlekk að finna í ættartölunni hans. Það eina sem mér dettur í hug þegar ég sé hann er: "I want that one". Fiðlu héldum við í júní, fyrir landsmót, og því voru þessar sjóðheitu landsmótsstjörnur ekki inni í myndinni fyrir hana. Hún fór undir einn gamalreyndan, Hróður frá Refsstöðum. Það er alltaf skynsamlegt að nota þessa hesta sem hafa margsannað sig sem gæðingafeður. Hróður fyljaði ekkert sérstaklega vel í sumar þó hann sé ekki nema 17 vetra en við vorum svo heppin að Fiðla var ein af þeim sem hann fyljaði.
0 Comments
Leave a Reply. |