Hágangur. Mynd: worldfengur.com Í sumar héldum við fjórum hryssum og vorum svo ljónheppin að þær fyljuðust allar. Við héldum undir þrjá unga hesta sem slógu í gegn í einstaklingssýningum í sumar, þá Spuna frá Vesturkoti (8,92), Konsert frá Korpu (8,54) og Blysfara frá Fremra-Hálsi (8,49) og sá fjórði er búinn að sanna sig sem gæðingafaðir, heiðursverðlaunahesturinn Hágangur frá Narfastöðum. 2012-árgangurinn verður verulega spennandi. Í vetur sem leið rákumst við á myndband af Spuna á heimasíðunni hjá Vesturkotsbændum, það fór ekki á milli mála að þarna væri spennandi efniviður. Við fylgdumst því grannt með honum á kynbótasýningunni í Hafnarfirði í maí og þar varð uppi fótur og fit, við urðum svakalega hrifin. Það varð því úr að Rúna frá Reykjavík fór í sæðingar til Spuna að Sandhólaferju í júní. Sæðingin mistókst og því var hún sædd aftur strax eftir landsmótið og blessunarlega tókst betur til í það skiptið, Rúna festi fang og kastar vonandi í byrjun júní ... (ýtið á Read more til að lesa meira) Sýningin á Spuna á landsmótinu í sumar líður seint úr minni þeirra sem hana sáu. Við vorum nýkomin inn á landsmótssvæðið og búin að stilla okkur upp við kynbótabrautina þegar Spuni mætir í braut. Ég leyfi mér að fullyrða að það verður bið á annari eins upplifun á kynbótasýningu, þetta var mögnuð stund og gott ef það sást ekki glytta í tár á hvarmi! Og það eru engar ýkjur. Aðrir góðir hestar féllu óneitanlega í skuggann af þessum ofurgæðingi á landsmótinu.
Konsert frá Korpu varð efstur í flokki 6 vetra hesta á landsmótinu með 8,54 í aðaleinkunn. Konsert er undan Sæ og Hátíð frá Hellu sem er dóttir Gáska og Nönu frá Hellu. Alltaf þykir mér betra að vita af Gáska gamla í bakgrunni. Sæsafkvæmi voru áberandi á kynbótabrautinni í sumar og voru sérstaklega eftirminnilegir á landsmótinu þeir Konsert, Sjóður frá Kirkjubæ og Arion frá Bakkakoti. Það varð úr að Perla frá Reykjavík fór í girðingu að Ármóti til fundar við Konsert og kastar vonandi fallegu Konsertsafkvæmi um miðjan júní. Rimma frá Kópavogi fór í sæðingar til Spuna að Sandhólaferju í júní eins og Rúna. Gerðar voru tvær tilraunir til að sæða hana en mistókust báðar. Það hefur ekki gengið vandræðalaust í gegnum tíðina að fylja Rimmu og það er ljóst að hún þarf unga og frjósama hesta sem veita henni fulla þjónustu. Svo nú voru góð ráð dýr, hvar finnur maður góðan stóðhest sem hefur lítið að gera? Blysfari frá Fremra-Hálsi varð fyrir því óhappi að bráka hófbein í framfæti í sumar og var því ekki sleppt í girðingu með hryssum. Hryssur voru einungis leiddar undir hann á húsi í Hólaborg og fréttum við að það væru fremur fáar hryssur hjá honum. Þetta var alveg sniðið að þörfum Rimmu, það er best að halda henni á húsi. Svo Rimma er nú fyljuð á ábyrgð Blysfara og mun vonandi kasta uppúr miðjum júlí. Blysfari er undan Arði frá Brautarholti og Frigg frá Fremra-Hálsi. Arður var ein af stjörnum landsmótsins í sumar, hann hlaut fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi aðeins 10 vetra gamall og hópurinn sem fylgdi honum til verðlauna var stórgóður, flott sýning þar. Við eigum hálfan hlut í Hákoni frá Ragnheiðarstöðum, sem er fjögurra vetra gamall sonur Álfs frá Selfossi og gæðingsins Hátíðar frá Úlfsstöðum, Kolfinnsdóttur. Til stóð að fara með Röst frá Reykjavík í girðingu til Hákons í byrun júlí. Þá vildi ekki betur til en svo að það varð að taka Hákon úr stóðinu því hann hagaði sér eins og bjáni. Hann byrjaði á að ráðast á allar geldar hryssur og reka þær burt og síðan hélt hann áfram og réðst líka á folaldshryssur svo ekki var annað til ráða en að taka hann úr hryssunum. Hákon var því bara notaður á húsi fram eftir sumri. Við ákváðum að betra væri að sleppa Röst með hesti í girðingu en að halda henni á húsi. Röst fór því til fundar við Hágang frá Narfastöðum að Sólvangi. Hágangur hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi í sumar og kynbótagildi hans er ótvírætt. Við erum meðvituð um að halda Röst undir vel byggða hesta og Hágangur er gullfallegur hestur með geðslag sem virðist vera einstakt miðað við hvernig hann fer undir barninu eigandanum. Það er spennandi árgangur í vændum næsta sumar.
0 Comments
Leave a Reply. |