Tíminn líður ógnarhratt, manni finnst eins og það hafi verið í gær en það var víst árið 2009 sem við fórum með Rimmu að Árbæ til fundar við Keili frá Miðsitju, síðasta vorið sem Keilir tölti um íslenska grund. Ári síðar fæddist Rögg sem nú er komin á tamningaraldur. Sama sumar fengum við Fiðlu fyrst lánaða og leiddum hana undir Óm frá Kvistum. Undan þeim kom Auðna. Nú hafa þær Auðna og Rögg verið á húsi í nokkrar vikur. Þetta eru myndarlegar hryssur, stórar og skrefmiklar. Báðar eru orðnar nokkurn veginn reiðfærar, þær skondrast allavega einhvernveginn áfram með knapann og kunna eitthvað á beisli. Keilisdóttirin fer mest á tölti en grípur brokkið af og til. Ómsdóttirin velur aftur á móti brokkið þó hún grípi aðeins í tölt. Auðna Ómsdóttir: Rögg Keilisdóttir: Nú eru þær komnar í frí, Auðna var glöð að komast út í haga til vina sinna og brokkaði á milli þeirra roggin og sperrt enda ekki á hverjum degi sem maður er útskrifaður af forskólastigi.
0 Comments
Leave a Reply. |