Við Ísar höfum átt margar góðar stundir í haust, hann blómstrar á haustin þessi elska. Um daginn riðum við eins og svo oft áður niður að stíflu í Elliðaárdalnum. Þar hittum við fyrir nokkrar konur sem voru að taka myndir af ákaflega vel klæddri fyrirsætu. Þetta reyndist vera fatahönnuðurinn Guðrún Kristín sem selur föt undir merkinu GuSt sem allir þekkja. Þær urðu ofsa glaðar að sjá hestinn og báðu um að fá að stilla honum upp með fyrirsætunni til að krydda aðeins myndirnar. Það var auðfengið. Meðfylgjandi myndir hefur hún svo notað til að auglýsa nýju verslunina sína í Ingólfsstræti. Hestamennska er langhlaup, ekki spretthlaup. Það hefur gengið á ýmsu hjá okkur Ísari í gegnum tíðina og við eigum í eilífum rökræðum um höfuðburð og stillingar, stundum hef ég betur, stundum hann. En í það heila þá fikrast hann í rétta átt. Vonandi ofmetnast hann ekki af módelstörfunum.
0 Comments
Leave a Reply. |