Það mætti halda að sumarið væri loksins komið. Folöldin fæðast, merum er haldið undir hesta og hitinn fór í 19° í sveitinni í dag. Við fórum með Rimmu gömlu á næsta bæ til Geisla frá Sælukoti. Geisli tók henni fagnandi eins og sjá má á myndinni. Rimma er nú 24ra vetra gömul og besta afkvæmi hennar hingað til er undan Geisla, því ekki að gefa þeim annan séns? Rimmu var ekki haldið síðasta sumar og kastaði því ekki í vor og þetta er líklega í síðasta skiptið sem henni verður haldið.
0 Comments
Leave a Reply. |