Fiðla kastaði í nótt stórum og myndarlegum hesti undan nýkrýndum Reykjavíkurmeistara í fimmgangi, Mætti frá Leirubakka. Einar og Bryndís eiga þennan en við höldum Fiðlu annað hvert ár á móti þeim. Það var nú hálf kuldalegt á honum í hrímþokunni, nasirnar á honum héluðu um leið og hann fæddist en svo var þetta orðið eitthvað notalegra í morgun.
2 Comments
Jónína
18/5/2012 07:07:03 am
Til hamingju með hann, rosalega flottar myndir hjá þér Berglind. Snillingur ;)
Reply
Birna
20/5/2012 02:40:44 pm
Flottar myndir af folaldinu og nýbakaðri folaldamóður !
Reply
Leave a Reply. |