Það er mikið fjör í stóðinu þessa dagana. Þrjú folöld fæddust í síðustu viku. Rúna frá Reykjavík kastaði fyrst, brúnni hryssu undan Spuna frá Vesturkoti. Hún hlaut nafnið Spes, af því að hún er svolítið ... spes... ... seinna sama dag kastaði Röst frá Reykjavík jörpum hesti undan Hágangi frá Narfastöðum... .... og Perla frá Reykjavík fékk brúna hryssu undan Konserti frá Korpu.... ...ég hef ekki enn haft tíma til að liggja yfir þeim og mynda og meta í bak og fyrir. En öll fara þau á gangi eins og nýfæddum folöldum er tamt og eitthvað eru þau misfalleg eins og gengur. Það er þó eitt sem ég hef lært í þessu ræktunarbrasi. Það er ekki alltaf fallegasta folaldið sem verður mesti gæðingurinn og trippi sem slettast um í haganum verða stundum feikna reiðhross.
0 Comments
Leave a Reply. |