Ég veit fátt vitlausara en folaldasýningar. Hvurslags fíflagangur er það að skulta folaldi inn í reiðhöll stútfulla af fólki og atast í því með plastpokum og prikum þar til ræfilsgreyið grípur til eina ráðsins sem það þekkir til að forða sér úr hættu; flótta. Vinninginn hefur það folald sem hræddast er og fer um á mesta flóttabrokkinu. Já nei, hlífið mér við þessari vitleysu.
Aftur á móti getur verið gaman að reka folöldin til í heimahaganum og spá og spökúlera í hreyfingum, ganglagi og geðslagi. Ekki er verra ef maður nær einhverjum töktum á mynd. Rispa undan Blysfara frá Fremra-Hálsi og Rimmu var nafnlaus langt fram á haust en hlaut nýverið þetta annars ágæta nafn, dætur Rimmu fá allar nafn sem byrjar á "R". Hún hefur hingað til látið fara lítið fyrir sér og hefur svolítið fallið í skuggann af jafnöldrum sínum sem eru dýrari á pappírunum, en mér sýnist hún eitthvað vera að sækja í sig veðrið. Rispa tók rispu fyrir mig í gær, sveif um á brokki og hægði svo niður á tölt:
0 Comments
Leave a Reply. |