Þar kom að því að maður settist niður og bjó til heimasíðu um hrossaræktina og hestamennskuna. Hér ætla ég að fjalla um hestana okkar Arnars. Umfjöllun um ræktunarhryssurnar og trippin okkar er komin inn á síður sem heita "gæðingamæður" og "vonarstjörnur" og síðar set ég inn umfjöllun um hross í þjálfun. Það hefur verið mjög gagnlegt að setja sig í stellingar og lýsa hrossunum, draga fram kosti þeirra og galla. Mér finnst ég þekkja þau betur á eftir. Ég tala nú ekki um hvað það er sniðugt að fara í gegnum myndasafnið og draga saman á einn stað myndir af hverju hrossi fyrir sig og var af nægu að taka og úr vöndu að velja. Svo vona ég bara að fleiri hafi gaman af þessu en ég:)
1 Comment
|