Krafla undan Krumma frá Blesastöðum Við tókum óvenju seint á hús þetta árið, fyrstu hross komu inn upp úr áramótum. Það teygðist óvænt á hesthússtörfunum í haust þegar eitt folaldið, hún Nett, fékk lungabólgu og þurfti á gjörgæslu að halda í nokkrar vikur. Hvíldin frá hesthúsinu var því vel þegin, það verður að hlaða batteríin. Nú eru þau endurhlaðin og ekki laust við að það sé kominn hugur í mann. Tamningarnar ganga svona og svona, eitthvað reynir maður að nuddast á þessu. Það eru átta hross á húsi núna, misjöfn eins og gengur en á hverjum degi á allavega eitt þeirra góðan dag, maður biður ekki um meira enn sem komið er. Það er allavega nægur efniviður í húsinu, hvernig úr vinnst verður svo að koma í ljós. Mesta pæjan þessa dagana er Urður frá Hafnarfirði stór og myndarleg rauðblesótt, glófext hryssa á fimmta vetur undan Sóloni frá Skáney og Angadóttur, Mist frá Laugarvatni. Hún afskaplega þægilegt hross og á auðvelt með sig á allan hátt. Það yngsta er foli á fjórða vetur undan Kvisti frá Skagaströnd, Frami frá Kvíarholti, Hann er skrefmikill og viljugur og verður gaman að sjá hvernig hann þróast í vetur. Þetta verður skemmtilegt ár, næstu verkefni sem bíða í haganum eru ekki af verri endanum, systkinin undan Ómi frá Kvistum, þau Feykir og Auðna. Feykir er á fjórða vetur og var fortaminn í september og lofar góðu en Auðna er á þriðja vetur og verður tamin með haustinu. Og svo þegar allt verður komið í steik getur maður allavega hlakkað til að fá folöldin í sumar undan Hróðri frá Refsstöðum, Hrannari frá Flugumýri og Konserti frá Korpu.
0 Comments
|