Á mínu daglega vafri um netið kem ég oft við á heimasíðum annarra hestamanna. Það verður að segjast að hestamenn eru ansi netvæddir. Tenglasöfnin sem ég hef notað mest eru hjá Húsavíkurhestum og Söðulsholti. Síðurnar eru jafn misjafnar og þær eru margar. Margir hafa lagt af stað með fögur fyrirheit en trassa svo að setja inn nýjar færslur svo enginn nennir að skoða þær lengur. En flestar eru þessar síður ágætar og nokkrar eru alveg stórfínar. Ein finnst mér standa upp úr og er það síðan hjá Helgu Thoroddssen á Þingeyrum í Húnavatnssýslu thingeyrar.is. Helga er mikill og góður penni, skrifar kómískan texta og bullar ekki tóma vitleysu eins og mörgum er tamt. Síðan er flott hönnuð og myndirnar, sem eru alveg sérstaklega góðar, njóta sín vel. Þar sem ég er mikil áhugamanneskja um ljósmyndun þá finnst mér það vera lykilatriði. Aðrar sem mér finnst mjög góðar eru síður Olil í Syðri-Gegnishólum gangmyllan.is og Söru í Álfhólum alfholar.is, báðar eru þær góðir pennar með flottar myndir og auðvitað hafa þær frá mörgu að segja með alla þessa góðu hesta í höndunum. Ég ákvað að gera mitt eigið tenglasafn og er það nú komið undir síðu sem ber hið virðulega heiti "larfahjörðin". Orðið er fengið að láni hjá ágætum hestamanni, norðlenskum að uppruna, sem stundum kemur í kaffi til okkar. Hann á yfirleitt ekki í vandræðum með að orða hlutina og í hans orðaforða eru hestamenn larfahjörð. Þið fyrirgefið mér það vonandi en mér finnst þetta eitthvað svo lýsandi orð fyrir þennan undarlega þjóðflokk.
1 Comment
Ég tók mig til og rogaðist með gamalt túpusjónvarp upp úr geymslunni, fann videótæki inni í skáp og tengdi þetta saman. Einhvern veginn tókst mér að fá þessa forngripi til að virka. Síðan sótti ég kassa með gömlum videóspólum af hinum og þessum stórmótum. Þar á meðal var spóla frá fjórðungsmótinu á Hellu árið 1996 en þar fékk Rimma frá Kópavogi, Piltsdóttirin okkar, 9,5 fyrir skeið í kynbótadómi og tók þátt í afkvæmasýningu Pilts. Piltur frá Sperðli fékk fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi á þessu móti, ellefu vetra gamall, og hlaut annað sætið á eftir ekki ómerkari hesti en Orra frá Þúfu. Þetta var virkilega flottur hópur sem kom fram með klárnum. Ásamt Rimmu komu þarna fram Eydís frá Meðalfelli, Fluga frá Hvolsvelli, Smellur frá Hvolsvelli, Emmi frá Sperðli, Demantur frá Miðkoti og Erill frá Kópavogi (sem er sammæðra Ágústínusi frá Melaleiti og Drótt frá Kópavogi). Merkilegasta hrossið í þessum hópi er líklega Eydís frá Meðalfelli. Hún hlaut 8,93 fyrir hæfileika, 9,5 fyrir tölt og 9 fyrir vilja. Hún er svo sannarlega farin að marka sín spor í hrossastofninum, Eydís er móðir Stelpu frá Meðalfelli sem er móðir Spuna frá Vesturkoti. Það er ekki laust við að Spuna svipi dálítið til afa síns, Pilts. Það má alveg sjá þarna svipaða takta. Þær systur Rimma og Eydís munu svo koma saman í einu af folöldunum sem við eigum von á næsta sumar. Fylið í Rúnu okkar Rimmudóttur er undan Spuna. Svo er bara að vona að afkvæmið erfi töltið frá Eydísi og skeiðið frá Rimmu :) Rimma kom margoft fram á mótinu, bæði sem einstaklingur og í afkvæmahópi Pilts. Því miður eyðilögðust allar upptökur af kynbótasýningum hryssna frá þessu móti og voru aldrei gefnar út á spólu. Því er einstaklingssýning Rimmu ekki til á filmu. Aftur á móti eru ágætar myndir af afkvæmasýningunum og ég lét koma þessu á tölvutækt form. Hér má fyrst sjá Rimmu frá Kópavogi, knapi er Arnar Bjarnason: Svo klippti ég saman nokkur atriði með Pilti sjálfum, knapi er Sigurður V. Matthíasson: Og hér er afkvæmasýning Pilts í heild sinni: Á landsmóti í Reykjavík árið 2000 var Piltur aftur sýndur til 1. verðlauna fyrir afkvæmi. Þá hlaut hann þessi dómsorð:
Afkvæmi Pilts eru meðalhross að stærð, svipgóð en ekki fríð. Hálsinn er stuttur en mjúkur, herðar þokkalegar en bógalega iðulega góð, yfirlína prýðileg. Afkvæmin eru mjúkbyggð en nokkuð stuttvaxin og lítill prúðleiki á fax og tagl er til lýta. Fætur eru fremur veikir, þokkalega réttir en hófar lélegir, efnisdeigir og flatbotna. Afkvæmin eru fjölhæf í gangi; töltið best, rúmt og frábærlega mjúkt. Viljinn þjáll og jákvæður. Piltur gefur mjúkgeng viljahross, hann hlýtur 1. verðlaun fyrir afkvæmi og sjötta sætið. |