Röst frá Reykjavík IS1998225302 F. Hrannar frá Kýrholti (8,32) ff. Ófeigur frá Flugumýri (8,19) fm. Stjarna frá Kýrholti M. Rimma frá Kópavogi (7,99) mf. Piltur frá Sperðli (8,33) mm. Nös frá Hala
Röst frá Reykjavík er elsta afkvæmi Rimmu frá Kópavogi. Hún var frá fyrsta degi hreingeng og með þennan léttleikandi vilja sem maður vill hafa í reiðhrossum. Arnar keppti dálítið á henni og var hæsti dómur þeirra í fimmgangi 6,33 á Reykjavíkurmeistaramóti árið 2004. Sjö vetra gömul fékk hún svo jafnan og góðan kynbótadóm fyrir hæfileika, átta fyrir allt nema 8,5 fyrir vilja og 7,5 fyrir fet, 8,09 alls.
Röst er algjör draumastóðhryssa. Hún hefur fyljast án vandræða á hverju ári, ef undan er skilin sú vitleysa í henni að hafna Álfasteini rétt áður en hann yfirgaf skerið. Hún er alltaf í (of) góðum holdum og folöldin hennar eru yfirleitt stór þó hún sé sjálf smá. Síðan er hún svo sniðug að leyfa hestunum að ráða útliti afkvæmanna þar sem hún er með fremur laka byggingu sjálf. Ekkert afkvæmanna líkist henni mikið í útliti en vonandi erfa þau hæfileika hennar.
Tölt: 8,0 (Há fótlyfta) Brokk: 8,0 (Skrefmikið) Skeið: 8,0 Stökk: 8,0 (Hátt) Vilji og geðslag: 8,5 (Ásækni) Fegurð í reið: 8,0 Fet: 7,5 Hægt tölt: 8,0 Hægt stökk: 8,0
Afkvæmi IS2006286665 Aldís frá Kvíarholti – f. Aðall frá Nýjabæ (7,96) IS2007281741 Buska frá Kvíarholti – f. Bragi frá Kópavogi IS2008281741 Fljóð frá Kvíarholti – f. Kjarni frá Þjóðólfshaga IS2009181741 Frami frá Kvíarholti – f. Kvistur frá Skagaströnd (fellt) IS2011181741 Vilji frá Kvíarholti – f. Alvar frá Brautarholti (fórst) IS2012181741 Faxi frá Kvíarholti - f. Hágangur frá Narfastöðum IS2013281741 Líf frá Kvíarholti - f. Konsert frá Korpu IS2014181741 Stígandi frá Kvíarholti - f. Skýr frá Skálakoti IS2016181741 Víkingur frá Kvíarholti - f. Markús frá Langholtsparti