Hviða frá Kvíarholti IS2011281742 F. Fróði frá Staðartungu (8,59) ff. Hágangur frá Narfastöðum (8,31) fm. Vænting (Blíða) frá Ási 1 (7,71) M. Rúna frá Reykjavík (8,05) mf. Geisli frá Sælukoti (8,28) mm. Rimma frá Kópavogi (7,99)
Kynbótamat 113
Mökkur frá Kvíarholti
Mökkur frá Kvíarholti IS2011181740 f. Hófur frá Varmalæk (8,34) ff. Hróður frá Refsstöðum (8,39) fm. Kengála frá Varmalæk(8,09) m. Perla frá Reykjavík (7,98) mf. Smári frá Skagaströnd (8,34) mm. Þruma frá Viðborðsseli 1 (8,00)
Mökkur er fyrsta folaldið hennar Perlu. Perla er með fremur veikt brokk og pælingin var að Hófur gæti kannski styrkt brokkið í afkvæminu. Það virðist hafa gengið eftir því Mökkur fer um á brokki með fjaðrandi hreyfingum. Til að byrja með leist okkur mátulega á hreyfieðlið í Mekki, hann fór bara um á hægu stökki... eins og pabbinn, Hófur er með 9,5 fyrir hægt stökk, en okkur fannst nóg um valhoppið á tímabili! Nokkrum dögum eftir að Mökkur fæddist hófst gosið í Grímsvötnum og um stund var öskufallið í Kvíarholti svo mikið að vart sá handa skil. Sem betur fer stóð það ekki nema í nokkra klukkutíma en ósköp hefur litlum folöldum þótt það óþægilegir klukkutímar. Og nafnið var ákveðið: Mökkur, eins og langafinn Mökkur frá Varmalæk. Ég fylgdist með Perlu kasta og Mökkur fæddist rymjandi sama skrítna hljóðinu og móðir hans gefur frá sér þegar eitthvað angrar hana. Þetta eru undarleg mæðgin!
Vilji frá Kvíarholti (Fórst 2ja vetra)
Vilji frá Kvíarholti IS2011181741 f. Alvar frá Brautarholti (8,02) ff. Dalvar frá Auðsholtshjáleigu (8,63) fm. Askja frá Miðsitju (8,16) m. Röst frá Reykjavík (7,85) mf. Hrannar frá Kýrholti (8,32) mm. Rimma frá Reykjavík (7,99)