Krafla frá Kvíarholti IS2007281740 (seld) f. Krummi frá Blesastöðum (8,53) ff. Kraflar frá Miðsitju (8,28) fm. Raun frá Húsatóftum (8,08) m. Tinna frá Kvíarholti
Krafla er undan gráa töltaranum Krumma frá Blesastöðum.
Móðir Kröflu, Tinna frá Kvíarholti, var hryssa úr eigu föður míns. Hún var sjálf ágætisreiðhross og undan tveimur mjög góðum hrossum. Hryðja frá Kvíarholti var móðir hennar, flugrúm og skemmtilegt hross undan Blæ frá Hellu. Gustur frá Kvíarholti var faðir hennar, feiknagóður alhliðareiðhestur með góðan fótaburð. Gustur þessi var undan Hrafni frá Öndólfsstöðum sem var Hrafnssonur og ekkert merkilegur sem einstaklingur. Undan honum komu fá en nokkuð góð afkvæmi. Dætur hans eru meðal annars Skálm frá Köldukinn, móðir Suðra, og tvær alsystur sem hafa gert góða hluti í ræktuninni í Auðsholtshjáleigu. Sú fyrri er Gloría frá Hafnarfirði, móðir Gyllingar frá Hafnarfirði, móðir Dalvars frá Auðsholtshjáleigu, hin er Hildur frá Garðabæ sem virðist bara skila gæðingum, þeirra á meðal eru Arnþór, Gaumur og Garpur frá Auðsholtshjáleigu.
Buska frá Kvíarholti
Buska frá Kvíarholti IS2007281741 f. Bragi frá Kópavogi (8,31) ff. Geysir frá Gerðum (8,39) fm. Álfadís frá Kópavogi (7,84) m. Röst frá Reykjavík (7,85) mf. Hrannar frá Kýrholti (8,32) mm. Rimma frá Kópavogi (7,99)
Buska er afsprengi mikillar skyldleikaræktunar út frá Ófeigi frá Flugumýri. Ófeigur var sem kunnugt er undan alsystkinum. Foreldrar Braga eru Ófeigsbörnin Geysir frá Gerðum og Álfadís frá Kópavogi. Bragi er því undan systkinum í tvo ættliði. Röst, móðir Busku, er svo undan Ófeigssyninum Hrannari frá Kýrholti. Ófeigur kemur því ansi oft fyrir í ættartölu Busku. Myndband af Busku tekið í júní 2015: