Náði skemmtilegri myndaseríu af Röst kasta skömmu eftir miðnætti 19. júní. Folaldið er hestur undan Markúsi frá Langholtsparti. Alltaf jafn magnað að verða vitni að þessu. Sjá myndir undir "read more".
0 Comments
Fyrsta afkvæmi fótaburðarhryssunnar Perlu frá Reykjavík og Hófi frá Varmalæk var taminn í vetur. Hann hefur erft ýmsa takta frá móður sinni. Mökkur er nýi uppáhalds, fimm vetra. Orð eru óþörf. Veðurblíðan og færið síðustu daga og vikur hefur verið með nokkrum eindæmum í Dalnum góða.
Í húsinu eru nú níu hross á öllum hugsanlegum stigum þjálfunar, á aldrinum 3ja til 9 vetra. Mér finnst ekki endilega skipta öllu máli hvaða hross er best, sá sem sýnir mestu framfarir hverju sinni er alltaf í mestu uppáhaldi hjá mér. Það er stundum sagt að vonin haldi mönnum við efnið í hrossarækt, vonin um að þarna komi loksins gæðingurinn sem þig hefur alltaf dreymt um að eignast. Skömmu áður en Auðna var sýnd í vor fór ég austur að Laugabökkum til að taka út stöðuna á þeim John, þið vitið, svona lokaúttekt fyrir kynbótasýningu. Meðfylgjandi myndbrot tók ég þá en gaf mér svo aldrei tíma til að vinna almennilega úr því, aðstæður til myndatöku voru slæmar og myndgæðin léleg. Hryssan var vægast sagt vígaleg þennan dag og þó maður reyndi að hafa ekki hátt um það svona út á við voru væntingarnar miklar og geðshræringin allnokkur. Sýningin fór svo eins og fór, aðaleinkunn 7,80, umsagnir góðar, 9 fyrir fegurð í reið en annað í 8 og 8,5, skeiðlaus, sem sagt ágætlega efnileg 5 vetra klárhryssa svona á pappírunum allavega. Hún er engu að síður gæðingurinn mesti og á það skilið að maður birti almennilegt videó af henni. (sjá meira undir "read more") Gullkálfarnir fjórir sem fæddust sumarið 2012 eru nú útskrifuð reiðfær eftir þriggja vikna tamningu. Þau eru hvert með sínu sniði en öll þæg og ágætlega efnileg, misefnileg auðvitað. Þessi trippi eru öll sæmilega ættuð, undan góðum hryssum og hestum með margar níur og sumir tíur í kynbótadómi, maður skyldi ætla að eitthvert þeirra lukkist.
Það virðist vera neikvæð fylgni milli væntinga og útkomu, því minni væntingar sem maður hefur í upphafi tamningar, því efnilegra reynist trippið... og öfugt... ég hef rekið mig á þetta áður. Hér fyrir neðan eru myndir af 3/4 af 2012 árganginum undan Hágangi, Blysfara og Konserti, mér láðist að taka uppstillta mynd af blup-sprengjunni undan Spuna frá Vesturkoti og Rúnu frá Reykjavík, hún útskrifaðist á undan hinum. Myndartrippi og töluvert gáfulegri á svipinn en þau voru fyrir þremur vikum. Aldís og Arnar tóku þátt í a-flokki áhugamanna á metamóti Spretts um helgina. Þau stóðu sig alveg hreint ágætlega, voru í 3. til 5. sæti eftir forkeppni en enduðu í 7. sæti. Brokkið sveik þegar spennustigið hækkaði í úrslitunum, en skeiðið er eitthvað sem þau kunna vel, fengu 8,74 fyrir það. Stal videóinu af vef hestafrétta. Það er alltaf svolítill höfuðverkur að finna nöfn á folöldin. Margir falla í þá gryfju að hafa þema eða tengja nöfnin á einhvern hátt við nöfn foreldranna og enda oft í tómum vandræðum. Það kom aldrei til greina að hafa fjármálaþema þetta árið þó feðurnir væru Gróði og Arion. Niðurstaðan varð Askja, Kveikur og Rimma, að mestu út í loftið en ekki alveg þó. Þau eru öll snotur á sinn hátt. Blesan gerir mikið fyrir Öskju, Rimma er gæf og spök og Kveikur er ægilegur töffari, enda veraldarvanur eftir sumardvöl með móður sinni í girðingu hjá Jarli frá Árbæjarhjáleigu. Þriðja folaldið þetta sumarið er undan Rúnu frá Reykjavík og Arioni frá Eystra-Fróðholti. Snotur brún hryssa sem hefur hlotið nafnið Rimma í höfuðið á móðurömmu sinni, Rimmu Piltsdóttur.
|