Keilisdóttirin Rögg kemur vel undan hausti rétt eins og besta vinkona hennar og uppeldissystir hún Auðna. Rögg er fædd 2010 eða ári eftir að Keilir fór úr landi, það mátti ekki seinna vera að halda undir þann höfðingja. Hún er undan Rimmu gömlu og í henni er því nett blanda af Keili og Pilti... ég þekki dæmi þess að sú blanda geti virkað ágætlega, ég nefni engin nöfn.
0 Comments
Má ég kynna Ómsdótturina okkar hana Auðnu 4ra vetra. Hún hefur nú verið í nokkrar vikur í þjálfun hjá John Kristni Sigurjónssyni. "Maður fær bara gæsahúð" sagði hann þegar hann tók hana til kostanna í dag. Ég get tekið undir það. |