Folaldið undan Konserti og Röst hlaut nafnið Líf. Hún er stór og svolítið grófgerð og með gríðarlega langa fætur. Enda átti hún í mesta basli með að hagræða skönkunum eins og sjá má á þessum myndum sem ég náði af henni þegar hún var nokkurra daga gömul. Ég get alveg ímyndað mér þæglegri stellingar til að sofa í.
0 Comments
|