Það er stundum sagt að vonin haldi mönnum við efnið í hrossarækt, vonin um að þarna komi loksins gæðingurinn sem þig hefur alltaf dreymt um að eignast. Skömmu áður en Auðna var sýnd í vor fór ég austur að Laugabökkum til að taka út stöðuna á þeim John, þið vitið, svona lokaúttekt fyrir kynbótasýningu. Meðfylgjandi myndbrot tók ég þá en gaf mér svo aldrei tíma til að vinna almennilega úr því, aðstæður til myndatöku voru slæmar og myndgæðin léleg. Hryssan var vægast sagt vígaleg þennan dag og þó maður reyndi að hafa ekki hátt um það svona út á við voru væntingarnar miklar og geðshræringin allnokkur. Sýningin fór svo eins og fór, aðaleinkunn 7,80, umsagnir góðar, 9 fyrir fegurð í reið en annað í 8 og 8,5, skeiðlaus, sem sagt ágætlega efnileg 5 vetra klárhryssa svona á pappírunum allavega. Hún er engu að síður gæðingurinn mesti og á það skilið að maður birti almennilegt videó af henni. (sjá meira undir "read more") Gullkálfarnir fjórir sem fæddust sumarið 2012 eru nú útskrifuð reiðfær eftir þriggja vikna tamningu. Þau eru hvert með sínu sniði en öll þæg og ágætlega efnileg, misefnileg auðvitað. Þessi trippi eru öll sæmilega ættuð, undan góðum hryssum og hestum með margar níur og sumir tíur í kynbótadómi, maður skyldi ætla að eitthvert þeirra lukkist.
Það virðist vera neikvæð fylgni milli væntinga og útkomu, því minni væntingar sem maður hefur í upphafi tamningar, því efnilegra reynist trippið... og öfugt... ég hef rekið mig á þetta áður. Hér fyrir neðan eru myndir af 3/4 af 2012 árganginum undan Hágangi, Blysfara og Konserti, mér láðist að taka uppstillta mynd af blup-sprengjunni undan Spuna frá Vesturkoti og Rúnu frá Reykjavík, hún útskrifaðist á undan hinum. Myndartrippi og töluvert gáfulegri á svipinn en þau voru fyrir þremur vikum. |