Þá er búið að gefa út nýtt kynbótamat. Alltaf gaman að skoða tölurnar á trippunum, þetta er svona örlítil vísbending um hvers má vænta af þeim. Og eins og allir vita þá snýst hrossarækt aðallega um væntingar.... og vonbrigði.
0 Comments
Við höfum nákvæmlega ekkert fram að færa þegar kemur að því að viðhalda litafjölbreytni í hrossastofninum. Þegar horft er yfir stóðið okkar blasir við brúnt, rautt og jarpt með aðeins tveimur undantekningum, eitt er móálótt og annað er grátt, fætt brúnt. Það er helst að takist að poppa þetta upp með nokkrum stjörnum og einhver eru ljósfext eða glófext. Samt höfum við haldið undir Óm hinn bleika tvisvar og fengið rautt, einhverja bleikálótta hesta höfum við notað og fengið jarpt (og eina móálótta undan Fróða). Einu sinni fengum við skjótt - það drapst. Tvo fola eigum við undan hinum gráa Hrym - báðir brúnir. Sokkar og blesur fást ekki hér, tvisvar höfum við fengið undan leistóttum Hróðurssonum og fengið stjörnótt, blesóttur Blysfari var notaður í fyrra og við fengum einlitt rautt. Krummadóttirin gráa er eiginlega sú eina sem nær aðeins að lífga upp á heildarmyndina. Ég veit svo sem að maður ríður ekki litnum en alltaf er nú skemmtilegt þegar þetta fer fallega í haga. Sko, fjarskafallega.
Fljóð er 4ra vetra hryssa undan Kjarna frá Þjóðólfshaga og Röst frá Reykjavík. Hún er næm en með efnilegar hreyfingar og það var ákveðið að láta atvinnumenn um að temja hana. Við sóttum hana í dag eftir 2ja mánaða tamningu hjá Birnu og Agnari í Stafholtsveggjum í Borgarfirði. |