Krafla og Urður stinga saman nefjum Það er afskaplega gott að vera í Víðidalnum á haustin. Þá er enginn á ferli nema örfáir tamningastrumpar eins og við og það er góður vinnufriður. Við tókum tamningarispu í haust og varð okkur mikið úr verki. Veðrið í september var líka svakalega gott og dagarnir langir. Okkur finnst miklu meira ávinnast með því að taka góða törn í september og fram í október heldur en að vera að sperrast við að taka inn snemma í desember í myrkri og slagveðri eins og oft er á þeim tíma. Fjórar hryssur voru frumtamdar, þrjár gerðar reiðfærar og ein var komin vel á veg í gerðinu ... (Read more til að lesa meira)
1 Comment
Hágangur. Mynd: worldfengur.com Í sumar héldum við fjórum hryssum og vorum svo ljónheppin að þær fyljuðust allar. Við héldum undir þrjá unga hesta sem slógu í gegn í einstaklingssýningum í sumar, þá Spuna frá Vesturkoti (8,92), Konsert frá Korpu (8,54) og Blysfara frá Fremra-Hálsi (8,49) og sá fjórði er búinn að sanna sig sem gæðingafaðir, heiðursverðlaunahesturinn Hágangur frá Narfastöðum. 2012-árgangurinn verður verulega spennandi. Í vetur sem leið rákumst við á myndband af Spuna á heimasíðunni hjá Vesturkotsbændum, það fór ekki á milli mála að þarna væri spennandi efniviður. Við fylgdumst því grannt með honum á kynbótasýningunni í Hafnarfirði í maí og þar varð uppi fótur og fit, við urðum svakalega hrifin. Það varð því úr að Rúna frá Reykjavík fór í sæðingar til Spuna að Sandhólaferju í júní. Sæðingin mistókst og því var hún sædd aftur strax eftir landsmótið og blessunarlega tókst betur til í það skiptið, Rúna festi fang og kastar vonandi í byrjun júní ... (ýtið á Read more til að lesa meira) Þar kom að því að maður settist niður og bjó til heimasíðu um hrossaræktina og hestamennskuna. Hér ætla ég að fjalla um hestana okkar Arnars. Umfjöllun um ræktunarhryssurnar og trippin okkar er komin inn á síður sem heita "gæðingamæður" og "vonarstjörnur" og síðar set ég inn umfjöllun um hross í þjálfun. Það hefur verið mjög gagnlegt að setja sig í stellingar og lýsa hrossunum, draga fram kosti þeirra og galla. Mér finnst ég þekkja þau betur á eftir. Ég tala nú ekki um hvað það er sniðugt að fara í gegnum myndasafnið og draga saman á einn stað myndir af hverju hrossi fyrir sig og var af nægu að taka og úr vöndu að velja. Svo vona ég bara að fleiri hafi gaman af þessu en ég:) |