"Hvað er best?" er spurning sem hestamenn spyrja gjarnan hvorn annan eftir reiðtúra dagsins - oftast er svarið breytilegt frá degi til dags. Eins og er hefur Hvinur vinninginn.
0 Comments
Aldís fékk hressilega útreið í kynbótadómi á dögunum. Það er ekki flókið að muna hæfileikatölurnar: 6-7-8! Stundum hafa menn gott af því að fá skellinn, þetta kemur mönnum á jörðina. En ég er ekki frá því að hún sé eitthvað betri á þessu myndbandi hér fyrir neðan en hún var í dómnum. Buska er 5 vetra undan Braga frá Kópavogi og Röst frá Reykjavík. Buska er efni í ágætis fimmgangshest. Svo er hún svona skemmtilega hreingeng og taktviss. Krafla er 5 vetra undan Krumma frá Blesastöðum og Tinnu frá Kvíarholti og er því af "gamla kyninu" eins og sumir kjósa að kalla það. Krafla er barasta efnilegur töltari. Mér finnst ferlega gaman að liggja á milli þúfna með myndavélina og fylgjast með hrossunum. Ég náði skemmtilegri syrpu af Rimmu og dóttur hennar um helgina. Rimma gamla var að leggja sig en sú stutta var greinilega orðin þyrst. Hún gerði nokkrar tilraunir til að ýta við mömmu gömlu en sú gamla lá sem fastast. Þá sá sú stutta sér leik á borði og nældi sér í sopa á meðan mamman blundaði. Alltaf er maður að sjá eitthvað nýtt! Það er nefninlega þannig að ef maður lætur fara lítið fyrir sér að þá gleyma hrossin fljótt nærveru manns og þá nær maður oft skemmtilegum mómentum. Hér fyrir neðan er syrpa af Faxa að stríða Fiðlusyni sem var að reyna að leggja sig en fékk ekki nokkurn frið til.
|