Í sumar fæddust okkur fjögur folöld, já ég veit, hrossaræktin er algjörlega farin úr böndunum hjá okkur. Feðurnir eru reyndar engar smáræðis kanónur svo kannski kemur eitthvað út úr þessu. Hryssurnar voru svo sendar út um allar jarðir á fund við stóðhesta. Þær eru nú allar komnar heim og gaman að sjá folöldin aftur, þau stækka hratt og eru orðnir miklir boltar.
Hér eru svo fleiri myndir af þessum boltum:
0 Comments
|