Þriðja folaldið þetta sumarið er undan Rúnu frá Reykjavík og Arioni frá Eystra-Fróðholti. Snotur brún hryssa sem hefur hlotið nafnið Rimma í höfuðið á móðurömmu sinni, Rimmu Piltsdóttur.
0 Comments
Það fór fyrir Urði frá Hafnarfirði eins og fleiri góðum hrossum, hún endaði rétt undir áttunni í kynbótadómi í vor, 7,99 var útkoman, auðvitað á að banna þessa tölu. Engu að síður er Urður feiknagott reiðhross með úrvals tölt og skeið. |