Við fengum fjögur folöld í sumar, þrjú eru hin sprækustu en eitt þeirra reyndist vanskapað og þurfti að lóga því, alltaf erfitt þegar eitthvað er að þessum greyjum. Tvö eru undan Skýr frá Skálakoti og eitt er undan Óskasteini frá Íbishóli, allt falleg folöld, lofthá og sperrt, tveir hestar ein hryssa.
0 Comments
Svo undarlega vildi til eitt kvöldið í júní að tvær hryssur köstuðu fyrir framan nefið á mér. Ég vissi svo sem að þær voru allar komnar nálægt því að kasta en varð meira en lítið hissa þegar ég sá að tvær þeirra voru í startholunum. Fyrst kastaði Rúna okkar og skömmu síðar kastaði Blíða, hryssa í eigu frænku minnar. Rúna virtist hafa fremur lítið fyrir þessu enda er þetta fimmta folaldið hennar, aftur á móti var þetta fyrsta folald Blíðu og þurfti hún að taka á öllu sínu, ég var að hugsa um að reyna að hjálpa henni aðeins og toga í lappirnar en þá tókst þetta hjá henni. Mögnuð kvöldstund! |