Mér telst til að nýafstaðin hestaferð sé líklega sú 15. í röðinni hjá mér eða um það bil. Ég hef ferðast á hestum þvers og kruss um landið, oft á leiðum sem eftir á að hyggja eru ekki reiðleiðir heldur gönguleiðir. Stundum hefur maður hugsað, nei andskotinn, þetta ríð ég aldrei aftur. Síðan eru aðrar leiðir sem maður fær ekki nóg af og vill helst af öllu bara fara strax aftur. Líklega eru Fjallabaksleiðirnar syðri og nyrðri þær alskemmtilegustu sem ég hef riðið. Vikur og sandar og varla verður grjót á vegi manns dögum saman. Þar er svo sannarlega hægt að láta skyrpa úr hófum og njóta reiðskjótans. Ég er líka svo heppin að ferðafélagar mínir til margra ára eru með alskemmtilegasta fólki sem um getur. Þetta er samsafn af algjörum snillingum sem taka hvorki sig né lífið of hátíðlega og við byrjum að hlæja þegar við hittumst og brosið fer ekki af manni í marga daga á eftir. Hestamenn eru upp til hópa skemmtilegt fólk, en boy o boy, þetta lið er engu líkt og sögurnar sem sagðar eru ekki hafandi eftir. Í ár var lagt upp frá Bergstöðum í Biskupstungum, eins og svo oft áður. Fyrsta dagleið var að Fossnesi í Hreppum og farið yfir Laxá við Sólheima. Dagur 2 var frá Fossnesi að Hólaskógi í gegnum Þjórsárdalinn, alveg hreint frábær dagleið. Dagur 3 var frá Hólaskógi að Landmannahelli. Fyrsti leggurinn þann daginn liggur í gegnum hraunið frá Þjórsárbrú við Sultartanga að Áfangagili. Leiðinlegt klöngur og fetgangur einn í boði en maður lætur sig hafa það til að komast í dásemdir Landmannaafréttar, því frá Áfangagili og inn að Landmannahelli er þetta dásemdin ein. Fjórða daginn fórum við til baka niður að Rjúpnavöllum í Landsveit. Það er alltaf sprengur að ríða frá Landmannahelli niður í sveit. Hestarnir verða ákaflega heimfúsir á þeirri leið og riðið greitt. Fimmta daginn riðum við frá Rjúpnavöllum og heim í Kvíarholt í gegnum Réttarnesið. Í góðri hestaferð þá rifjast upp fyrir manni að lífið á að vera skemmtilegt ferðalag. SVONA skemmtilegt ferðalag. Takk fyrir frábæra fimm daga á fjöllum kæru ferðafélagar. Enjoy the ride.
5 Comments
Rimma gamla kastaði 9. júlí snotri rauðri hryssu undan Blysfara frá Fremra-Hálsi. Kynjahlutfallið er afar jákvætt þetta árið, við fengum 3 merfolöld og eitt hestfolald. Það er sérlega ánægjulegt að fá hryssu undan Rimmu því hún er nú orðin 23ja ára gömul. En eins og myndirnar bera með sér er hún í fullu fjöri og fer um í haganum eins og unghryssa í fótaburði, blessunin.
|