Þriðja folaldið okkar þetta árið er falleg hryssa undan Konserti frá Korpu og Röst frá Reykjavík.
Háfætt með langan grannan háls og öll hlutföll í lagi. Það er ekki víst að hún klikki :) Þá eru allar hryssurnar kastaðar og kynjahlutföllin eru heppileg, tvær hryssur og einn hestur. Og auðvitað verða þetta allt eintómir snillingar.
0 Comments
Afkvæmi Perlu þetta árið er í eigu meðeigandans. Hann var ljónheppinn að fá þessa fallegu hryssu undan Hrannari frá Flugumýri.
Á bak við Hrannarssonin hennar Rúnu eru þrír sögufrægir Gustar; Gustur frá Grund, Gustur frá Hóli og Gustur frá Sauðárkróki (Höfða-Gustur). Nafnið á hann kom nokkurn veginn af sjálfu sér, hann heitir Gustur.
Gustur frá Kvíarholti M: Rúna frá Reykjavík MF: Geisli frá Sælukoti MFF: Gustur frá Grund F: Hrannar frá Flugumýri FF: Kraftur frá Bringu FFF: Gustur frá Hóli FM: Hending frá Flugumýri FMF: Kveikur frá Miðsitju FMFF: Gustur frá Sauðárkróki Það mætti halda að sumarið væri loksins komið. Folöldin fæðast, merum er haldið undir hesta og hitinn fór í 19° í sveitinni í dag. Við fórum með Rimmu gömlu á næsta bæ til Geisla frá Sælukoti. Geisli tók henni fagnandi eins og sjá má á myndinni. Rimma er nú 24ra vetra gömul og besta afkvæmi hennar hingað til er undan Geisla, því ekki að gefa þeim annan séns? Rimmu var ekki haldið síðasta sumar og kastaði því ekki í vor og þetta er líklega í síðasta skiptið sem henni verður haldið.
Alltaf er maður að sjá eitthvað nýtt. Þarna eru Rispa og Áróra að kúra. Þó að hestar séu sífellt að snerta hvorn annan hef ég aldrei séð hesta kúra saman fyrr. Rispa er veturgömul og hefur tekið miklu ástfóstri við folaldið sem er þriggja vikna gamalt. Kannski hefur hún bara verið ráðin sem barnapía á meðan mamman er á beit. Kannski er hún bara að skýla folaldinu fyrir rokinu. Kannski finnst þeim bara gott að kúra. Það er margt skrýtið í hesthausnum.
Rúna kastaði í gær hestfolaldi undan Hrannari frá Flugumýri. Hann er smár en snotur og mér sýnist hann eiga eftir að geta sperrt sig. Karlleggurinn á bak við þennan snáða er ekki amalegur: Hrannar frá Flugumýri - Kraftur frá Bringu - Gustur frá Hóli - Gáski frá Hofsstöðum, hvergi veikan hlekk að finna. Ég geri þá skýlausu kröfu til snáðans að hann verði ekki eftirbátur áa sinna.
|