Fiðla kastaði í nótt stórum og myndarlegum hesti undan nýkrýndum Reykjavíkurmeistara í fimmgangi, Mætti frá Leirubakka. Einar og Bryndís eiga þennan en við höldum Fiðlu annað hvert ár á móti þeim. Það var nú hálf kuldalegt á honum í hrímþokunni, nasirnar á honum héluðu um leið og hann fæddist en svo var þetta orðið eitthvað notalegra í morgun.
2 Comments
|