Útigangurinn hefur ekki verið öfundsverður að þurfa að híma úti í þessari ótíð sem hefur verið nær linnulaust frá því í byrjun desember. Það er í raun alveg ótrúlegt hvað trippin eru glansandi fín og í góðu standi þrátt fyrir allt. Oft hefur manni orðið hugsað til þeirra þegar hryðjurnar bylja á rúðunni en þetta eru harðgerðar skepnur. Ekki laust við að það örli á auðmýkt loksins þegar sólin lætur sjá sig og nær að hita feldinn á þeim.
0 Comments
|