Ferlega sniðug þessi litla Flip-camera sem ég splæsti á mig í haust. Maður þyrfti að gera meira af því að taka videó af hestunum. Það getur til dæmis verið mjög gagnlegt fyrir knapann að sjá með eigin augum á hverkonar villigötum hann er í þjálfuninni, slík videó eru bara til heimabrúks en ekki til birtingar. Hvinur er efnisfoli undan Rimmu gömlu og Hrym frá Hofi. Mér sýnist hann vera á réttri leið, þetta er ágætisstaða á fimm vetra fola snemma veturs.
0 Comments
Á vetrarleikum Fáks í gær kom fram hestur sem er ástæða til að fylgjast með. Vinur frá Reykjavík heitir hann og er undan Kolfinni frá Kjarnholtum og Þrumu frá Viðborðsseli. Hann er því sammæðra Perlu okkar og er úr ræktun Sigurvins eins og hún. Hann var sýndur í kynbótadómi í fyrrasumar og fékk 7,99 í aðaleinkunn (bygging 7,80 / hæfileikar 8,12). Hann er bara nokkuð líkur Perlu, hefur sama fasið en bara enn meiri fótaburð. Vinur endaði í öðru sæti á mótinu í gær, knapi er Jón Gíslason. Hesthúsið okkar í C-tröðinni samanstendur af tveimur litlum samliggjandi einingum. Við keyptum nýja hluta hesthússins sumarið 2010 af þremur virðulegum körlum sem voru að draga saman seglin í hestamennskunni og ákváðu að selja. Við gripum gæsina glóðvolga enda ekki auðvelt að finna í Víðidalnum hesthús af hentugri stærð. Samtals eru þessar tvær einingar ca. 70fm og 25% af lengjunni allri. Húsið fengum við endanlega afhent síðast liðið vor. Haustið fór í að rífa gömlu rörainnréttingarnar út úr nýja hlutanum og smíða einfaldar slysafríar bráðabirgðainnréttingar úr timbri í staðinn. Kaffistofan fékk líka að fjúka úr þessum helmingi hússins svo nú er þar mikil lofhæð og þar af leiðandi mjög gott loft.
Á langtímaplaninu er svo að rífa allt innvolsið úr báðum húsunum og hanna upp á nýtt sem eina heild. Annars eru nýju innréttingarnar svo fínar að það er engin pressa á smiðnum að fara í allsherjar yfirhalningu á húsinu. Þetta er hlýjar og snyrtilegar innréttingar, stíjurnar eru stórar og rúmgóðar og ég get varla ímyndað mér að betur geti farið um hestana. Hestar eru nefninlega svo skemmtilegir, þeim er bara alveg sama þó að stíjurnar þeirra séu ekki úr eik og ryðfríju stáli svo lengi sem vel fer um þá. Innréttingar þurfa ekki að vera dýrar til að vera góðar. Fyrri myndirnar tvær eru úr nýja húsinu þar sem geldingarnir eru, seinni myndirnar tvær eru úr gamla húsinu þar sem hryssurnar eru. |